KIM og ÍKV

Nýársfagnaður Kím Og íkv

Í tilefni af kínversku áramótunum 2025 ‏efnum við, Kínversk íslenska menningarfélagið og Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, til áramótafagnaðar fimmtudaginn 6. febrúar n.k. og fögnum ári snáksins, sem þá verður n‎‎ýgengið í garð.

Kvöldverðurinn verður haldinn að Eyjafjallajökli á  Center Hótel Plaza, Aðalstræti 4, 101 Rvk.  – og hefst kl. 19:00. 

KIM og ÍKV

Sendiherra Kína á Íslandi, He Rulong, mun ávarpa félagsmenn og gesti okkar en auk hans mun Sveinn K. Einarsson deildarstjóri hjá utanríkisráðuneytinu segja frá fjölbreyttri reynslu sinn sem námsmaður, viðskiptamaður og diplómati í Kína.

KMIKv

Þá mun tónlistarkonan Liu Xiaohuang leika nokkur lög fyrir gesti á hljóðfærið guzheng, til að ramma inn stemmninguna!

KIM og ÍKV

Í boði verða kínversku réttirnir sem eru einna vinsælastir á Íslandi, sjá matseðil hér að neðan* – og verðið er kr. 6.900 á mann.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og bjóða með sér gestum til að fagna kínverska nýárinu saman og með sendiherranum og öðrum vinum okkar úr kínverska sendiráðinu.

Skráning fer fram með greiðslu fyrir kvöldverðinn, kr. 6.900 inn á reikning 0515-26- 406777, kt. 481195-2099 – fyrir 4. feb. n.k.

Ath. – Hvorki verður hægt að skrá og greiða síðar né á staðnum.

*Matseðill:
猪肉蔬菜饺子 – Heimagerðir dumplings með svínahakki og grænmeti
宫保鸡丁 – Kungpao kjúklingur
歌乐山辣鸡翅 – Spicy kjúklingavængir Sichuan style
北京烤鸭 – Peking önd með pönnukökum og meðlæti
油炸虎虾配酱汁 – Tígrisrækjur djúpsteiktar með sósu
红烧牛肉 – Braised nautakjöt

Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest og munið að það er velkomið að bjóða með sér gestum.

F.h. stjórna félaganna, Jónína og Arnar Steinn

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *