Jon goðsagnaverur - 1

Kínverskar Goðsagnaverur

Kínverskar goðsagnaverur
Jón Egill Eyþórsson

Jón Egill Eyþórsson er sjálfstætt starfandi fræðimaður á sviði austur-asískra fræða. Hann er með BA-próf í kínverskum fræðum frá Shinshu-háskóla í Japan (1996), meistarapróf í kínverskri skjalfræði (philology 文獻學) frá Zhejiang-háskóla í Kína (2006) og er í doktorsnámi í heimspeki við Stofnun kóreskra fræða í Suður-Kóreu.

Í erindi sínu mun Jón Egill fara í helstu drætti kínverskrar goðafræði og sagnaheims hennar. Kynntar verða þekktar goðsagnaverur, guðir og hetjur, ásamt hugmyndum um sköpun heimsins, jafnvægi náttúrunnar og tengsl manna og hins yfirnáttúrulega. Við sögu koma meðal annars risinn PanGu og sjávarguðinn Mazu, sem m.a. bjargar sjómönnum. Erindið veitir fróðlega innsýn í menningararf sem hefur mótað heimsmynd Kínverja í þúsundir ára.

Maza

Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröðinni Snarl og spjall um Kína sem Kínversk-íslenska menningarfélagið stendur að í samvinnu við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós. Fyrirlesturinn fer fram fimmtudaginn 19. febrúar 2026, kl.17:15, í stofu 007 í Veröld – húsi Vigdísar og er öllum opinn. Ekki gjaldskylda á bifreiðastæðum eftir kl. 16:00. Boðið er upp á veitingar og geta gestir spjallað saman, myndað tengsl eða guanxi, eins og það heitir á kínversku. Síðan hefst frásögn Jóns. 

Það þarf að yfirgefa stofuna fyrir kl. 18:45 en hægt að halda áfram að spjall fyrir utan hana.

Verold

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *