Kínverskukennsla barna
Það ku vera fallegt í Kína
Þorgerður Anna lauk námi í almennum málvísindum og kínverskum fræðum við Háskóla Íslands og eins árs námsdvöl við Nanjing Háskóla í Kína 2009-2010. Nú starfar hún hjá Konfúsíusarstofnun og hefur kennt grunnskólabörnum kínversku í fjóra vetur. Hún segir frá kennslunni og býður áhugasömum í leiðinni að læra smá kínversku með kennsluaðferðum sínum.
Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl í hinu glæsilega Kínasafni Unnar að Njálsgötu 33B, 101 Reykjavík. Safnið opnar kl. 18:00 með súpu og spjalli. Um 18:30 hefst síðan fyrirlesturinn sem miðað er við að taki u.þ.b. 30-40 mínútur. Aðgangseyrir er 1000 krónur og er aðeins tekið við greiðslu með seðlum, ekki debet- eða kreditkortum. Ásamt súpu er brauð, kremkex og te í boði. Vegna þess að mikið er af brotthættum og verðmætum munum í safninu er miðað við 12 ára aldurstakmark.
Hér er skemmtilegt viðtal sem Björn Reynir Halldórsson, blaðamaður hjá Fréttatímanum, tók við Þorgerði 2016 um kennslu hennar. Þetta eru tvö pdf-skjöl.
Þorgerdur – Fyrri hluti
Þorgerdur – Seinni hluti.
Hér er hægt að lesa um aðra viðburði undir heitinu Það ku vera fallegt í Kína.