Love, Ideas and Rivalries: A Circle of Chinese Intellectuals in the Early 20th Century Yabei Hu The lecture is in English. More info in English below text in Icelandic.
Yabei Hu, kínverskukennari og myndasöguteiknari, fjallar um líf, hugmyndir og flókin tengsl innan heillandi hóps kínverskra hugsuða snemma á 20. öld. Fyrirlesturinn gefur lifandi innsýn í þennan áhugaverða hóp og hentar öllum, óháð fyrri þekkingu á kínverskri sögu eða bókmenntum. Continue reading Chinese Intellectuals→
Handan laufsins: Kynning á kínverskri temenningu Lin Yan
The lecture is in English. More info in English below text in Icelandic.
Lin Yan, kennari við Konfúsíusarstofnun og dósent við Tungumáladeild Ningbo-háskóla, er allt í senn mikil áhugamanneskja, nemandi og iðkandi kínverskrar menningar.
Kínversk temenning er ein af elstu og dýpstu menningarhefðum Kína, með sögu sem spannar yfir þúsundir ára. Te er ekki aðeins drykkur í Kína heldur tákn um virðingu, hugleiðslu og jafnvægi. Það gegnir mikilvægu hlutverki í daglegu lífi, trúarbrögðum, lækningum og mannlegum samskiptum. Temenningin felur í sér fjölbreyttar tegundir tes, siði við bruggun og drykkju, og áherslu á fegurð, ró og tengingu við náttúruna. Lin mun hella upp á kínverskt te og munu gestir fá tækifæri á að smakka. Komið og kynnist kínverskri temenningu með Lin í Veröld Continue reading Kínversk Temenning→
Síðastliðinn sunnudag var haldin kínversk-íslensk testund við skátaskálann á Lækjarbotnum. Skammt frá er tær berglind og var vatnið tekið beint úr henni og notað til að hella upp á hágæða kínverskt pu’er te og hvítt te . Jafnframt var boðið upp á lífrænt brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, bæði hrísgrjónabrauð og brauð unnið úr íslensku korni.
Rigning hafði verið svolítið áhyggjuefni við skipulag dagsins en einmitt síðdegis þennan sunnudag var vor í lofti. Veðrið lék við gesti samkomunnar sem nutu tedrykkjunnar í kyrrð íslenskrar náttúru. Söngskálar ómuðu og hughrífandi tónar. Að lokum voru gerðar tai-chi (太极) æfingar til að vekja upp líkamann. Dásamlegur dagur í alla staði og mögulegt að þetta verði endurtekið síðar.
Við hjá Kínversk-íslenska menningarfélaginu og Konfúsíusarstofnun þökkum Qing í Heilsudrekanum sérstaklega fyrir að láta þessa testund verða að veruleika og þökkum Sigfúsi bakara fyrir brauðið sem hann smurði og gaf gestum að smakka.
Myndir: Heilsudrekinn, KÍM Kínversk-íslenska menningarfélagið, Konfúsíusarstofnunin Norðurljós og Heilsudrekinn