KIMogIKV

Nýárskvöldverður Kím Og íkv

Í tilefni af kínversku áramótunum munu Kínversk-íslenska menningarfélagið og Íslensk-kínverska viðskiptaráðið fagna ári svínsins þriðjudaginn 5. febrúar kl. 19.00 á Veitingahúsinu Sjanghæ, Reykjavíkurvegi 74 í Hafnarfirði. Nýárskvöldverður KÍM og ÍKV er orðinn árviss viðburður. Borðhaldið hefst kl. 19.30. Þeir sem eru ekki í félögunum geta einnig komið.

SjanghæSjanghæ

Nýárshátið KÍM og ÍKV 2018
Helgi Steinar Gunnlaugsson, uppistandari

Ræðumenn kvöldsins verða Jin Zhijian, sendiherra Kína í Reykjavík, og Helgi Steinar Gunnlaugsson, uppistandari, en hann bjó um árabil í Kína.

Níu rétta hlaðborð er í boði:

Forréttir
A) Kjúklingasúpa með grænmeti
B) Djúpsteiktar vorrúllur

Aðalréttir
1) Djúpsteiktar rækjur í súrsætri sósu
2) Hunangsgljáð svínakjöt
3) Kjúklingur í sterkri chilisósu með grænmeti (Kung Pao)
4) Gufusoðinn heill karfi
5) Lambakjöt með svartpiparsósu
6) Svínakjötsstrimlar með sterkri hvítlaukssósu og chili
7) Peking önd
8) Kaffi, te og ís

Verð: 4.900 krónur

Gestir geta tekið með sér eigin drykkjarföng, vín eða bjór, en einnig verða drykkir til sölu við vægu verði. Sætafjöldi er takmarkaður og er fólk því vinsamlegast beðið að panta tímanlega. Pantanir má senda á netfangið kim@kim.is. Pantanir berist í síðasta lagi föstudaginn 1. febrúar fyrir kl. 16.00.

Allir velkomnir

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *