Minghai Hu

Kínversk Læknisfræði

Fimmtudaginn 16. febrúar hófst fyrirlestraröðin Snarl og spjall um Kína á ný eftir þó nokkuð langt hlé. Fyrsti fyrirlesari var Minghai Hu, nálastungulæknir, sem fjallaði um hefðbundna kínverska læknisfræði (Traditional Chinese medicine). Hann sagði frá hugmyndafræði hennar, sögu, greiningaraðferðum og öllum helstu meðferðum, svo sem nálastungum og lyfjum sem m.a. eru unnin úr plöntum og skordýrum. Hann fjallaði einnig um notkun á nálastungu sem meðferð við þunglyndi hérlendis sem gefist hefur vel. Meðferðis hafði hann nálar í pakkningum sem gestir fengu að skoða, til að sjá mismunandi stærðir og gerðir nálanna sem hann notar. 

Minghai Hu er menntaður frá Tianjin University of Traditional Chinese Medicine og kenndi þar sem dósent. Samhliða kennslu starfaði hann á spítala sem nálastungulæknir. Hérlendis starfaði hann hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og rekur nú stofu að Þverholti 14 í Reykjavík. 

Viðburðurinn var á vegum Kínversk-íslenska menningarfélagsins og Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa. Áður en fyrirlesturinn hófst var boðið upp á ókeypis veitingar

Minghai HuMinghai HuMinghai HuMinghai HuMinghai HuMinghai HuMinghai Hu

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *