Viðburður: | Vatn úr bergvatnslind notað til að búa til te skv. kínverskri hefð. Íslenskt grænmeti og kínversk leikfimi. |
Tími: | Sunnudaginn 7. maí 2023 kl. 14:00. |
Staður: | Skátaskálinn Lækjabotnar. |
Aðgangur: | Ókeypis |
Sunnudaginn 7. maí mun Kínversk-íslenska menningarfélagið (KÍM) og Konfúsíusarstofnun í samstarfi við Heilsudrekann bjóða gestum að njóta kyrrlátrar teathafnar og hugleiðslu á fallegum stað skammt frá Reykjavík. Ætlunin er að vera úti í náttúrunni við skátaskálann á Lækjarbotnum en hægt verður að fara inn í skálann ef rignir og til að nota salerni. Þar sem ekki eru mjög mörg bílastæði í boði er best ef fólk sameinast í bíla. Við minnum líka á hlýjan og þægilegan fatnað. Continue reading Heilsudagur – Kínversk Teathöfn Með íslensku Bergvatni