Garðbúar

Heilsudagur – Kínversk Teathöfn Með íslensku Bergvatni

 

Viðburður: Vatn úr bergvatnslind notað til að búa til te skv. kínverskri hefð. Íslenskt grænmeti og kínversk leikfimi.
Tími: Sunnudaginn 7. maí 2023 kl. 14:00.
Staður: Skátaskálinn Lækjabotnar.
Aðgangur: Ókeypis

Sunnudaginn 7. maí mun Kínversk-íslenska menningarfélagið (KÍM) og Konfúsíusarstofnun í samstarfi við Heilsudrekann bjóða gestum að njóta kyrrlátrar teathafnar og hugleiðslu á fallegum stað skammt frá Reykjavík. Ætlunin er að vera úti í náttúrunni við skátaskálann á Lækjarbotnum en hægt verður að fara inn í skálann ef rignir og til að nota salerni.  Þar sem ekki eru mjög mörg bílastæði í boði er best ef fólk sameinast í bíla. Við minnum líka á hlýjan og þægilegan fatnað.

Náttúrleg uppspretta vatns skiptir miklu máli fyrir góða teathöfn. Við skátaskálann er slík uppspretta, með öruggu og góðu vatni, sem vatnsveitusérfræðingur hefur vottað að er besti staðurinn til að sækja drykkjarvatn. Skálinn er um 14 km. austur af Reykjavík undir hlíðum Selfjalls ofan við Heiðmörk. Það tekur um það bil 15 mínútur að keyra að skálanum. Skálinn er mjög glæsilegur og í fallegu umhverfi, tilvalið til að æfa Taichi, Qigong og drekka te.

Grænmeti

Boðið verður upp á íslenskt grænmeti frá Sölufélagi garðyrkjumanna sem leggur áherslu á góða næringu, bragðgæði, vatnsgæði og loks lífsgæðin.

Hér mætast íslensk náttúra og kínverskt heilsute og leikfimi, það gerist vart betra. Samskonar viðburður var haldinn í fyrra og útkoman dásamleg testund eins og sjá má á þessari vefsíðu:
https://kim.is/2022/05/17/dasamleg-testund/#more-1569

Skátaskálinn Lækjabotnar
Ekið er til austurs Suðurlandsveg frá Olís við Rauðavatn og beygt til hægri þar sem er blátt umferðarmerki sem á stendur: ,,Sumarhús”. Ekið er til suðurs og beygt til vinstri þar sem er stórt grænt spjald, sem á stendur m.a. ,,SKÓGRÆKTARFÉLAG KÓPAVOGS” og ekið að skátaskálanum. Leiðin er sýnd hér að neðan með korti, ljósmyndum og myndbandi. Það má leggja á túninu innan hliðsins ef það er ekki rigning, en annars og við veginn eins og hvíta bifreiðin á myndinni. Menn beðnir að leggja við hlið annarra bifreiða til að nýta plássið. Einnig er hægt að leggja við Waldorfskólann Lækjarbotna. Í skátaskálanum eru salerni.
Garðbúar

Garðbúar Garðbúar
Bílastæð Bílastæði

Kínverskt te og leikfimi
Dong Qing Guan, eigandi Heilsudrekans, mun bjóða gestum að gera nokkrar léttar kínverskar æfingar. Samband Tai Chi og Qigong við te, er eins og allt sem tengist hefðbundinni kínverskri menningu á sér langa og flókna sögu. Að drekka te hefur verið kínverskur siður í þúsundir ára og elstu heimildir eru frá 10. öld f.Kr. Kínverski heimspekingurinn Laozi lýsti tei sem „froðunni í fljótandi jaðri“ og kallaði það ómissandi innihaldsefni í lífsins elixír sem hann telur að það sé mikilvægt fyrir langlífi okkar og heilsu. Margar vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á heilsufarslegan ávinning af Tai Chi og te. Dr. Greenwood, sérfræðingur um samband mataræðis, næringar og heilaheilsu, telur að efnasamböndin í te virðast hafa áhrif á nánast allar frumur líkamans með jákvæðum hætti. Talið að með því að drekka að minnsta kosti einn bolla af grænu, svörtu, hvítu eða oolong tei á dag geti stuðlað verulega að eflingu lýðheilsu. Þannig að
það hefur líkamlegan ávinning eins og Tai Chi.

Dong

Garðbúar Garðbúar
Dong Dong

 ,,Tea and Tai Chi is being-in-the-world, being part of the world, being in harmony with the world, being in nature.”

Dong Dong

Varaáætlun
Vonandi verður gott veður en hægt að leita sér skjóls í skálanum ef það rætist ekki en það mun ekki hafa áhrif á ofangreinda viðburði. 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *