Kristín A. Árnadóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Kína, segir frá nýafstaðinni páskaferð sinni til Kína sem fararstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar.
Kristín deilir með okkur frásögnum úr ferðinni og sýnir myndir sem gefa innsýn í menningu og daglegt líf í Kína. Með áratugalanga og djúpa reynslu af kínversku samfélagi veitir Kristín einstakt sjónarhorn á land og þjóð – bæði frá sjónarhóli ferðalangsins og diplómatsins. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem vilja kynnast Kína á lifandi og persónulegan hátt. Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking. Hún þekkir því Kína afar vel, bæði söguna, stjórnmálin og daglegt líf. Hún hefur víðtæka alþjóðlega reynslu, m.a. í samskiptum og menningartengdu starfi.
Boðið er upp á veitingar og geta gestir spjallað saman, myndað tengsl eða guanxi, eins og það heitir á kínversku. Síðan hefst frásögnin.
Continue reading Kínaspjall Með Kristínu árnadóttur, Fyrrum Sendiherra íslands í Peking