Kínaspjall Með Kristínu árnadóttur, Fyrrum Sendiherra íslands í Peking

Kristín A. Árnadóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Kína, segir frá nýafstaðinni páskaferð sinni til Kína sem fararstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar.

Kristín deilir með okkur frásögnum úr ferðinni og sýnir myndir sem gefa innsýn í menningu og daglegt líf í Kína. Með áratugalanga og djúpa reynslu af kínversku samfélagi veitir Kristín einstakt sjónarhorn á land og þjóð – bæði frá sjónarhóli ferðalangsins og diplómatsins. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem vilja kynnast Kína á lifandi og persónulegan hátt. Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking. Hún þekkir því Kína afar vel, bæði söguna, stjórnmálin og daglegt líf. Hún hefur víðtæka alþjóðlega reynslu, m.a. í samskiptum og menningartengdu starfi.

Boðið er upp á veitingar og geta gestir spjallað saman, myndað tengsl eða guanxi, eins og það heitir á kínversku. Síðan hefst frásögnin. 

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 007 í Veröld – húsi Vigdísar fimmtudaginn 16. apríl 2026, kl.17:30. Ekki er gjaldskylda á bílastæðum eftir kl. 17:00.
Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröðinni Snarl og spjall um Kína sem Kínversk-íslenska menningarfélagið stendur að í samvinnu við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós. Fyrirlestraröðin skapar vettvang til að spjalla saman og kynnast fjölbreyttum málefnum tengdum Kína.

Það þarf að yfirgefa stofuna fyrir kl. 18:45 en hægt að halda áfram að spjall fyrir utan hana.
Verold

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *