Nýárskvöldverður Vegna ár Hundsins 2018

Ágæti félagsmaður í KÍM

Í tilefni af kínversku áramótunum munu Kínversk-íslenska
menningarfélagið og Íslensk-kínverska viðskiptaráðið fagna ári hundsins föstudaginn 16. febrúar  kl. 19.00 á veitingahúsinu Fönix, Bíldshöfða 12, 108 Reykjavík. Nýárskvöldverður KÍM og ÍKV er orðinn árviss viðburður. Borðhaldið hefst kl. 19.30.

Ræðumaður er Helgi Steinar Gunnlaugsson, uppistandari og framkvæmdastjóri Kínverskrar ráðgjafar, en hann bjó um árabil í Kína.

Átta rétta hlaðborð er í boði:

Dumplings (fylltar hveitibollur)
Kungpao kjúklingur
Lambakjöt í hvítlaukssósu
Nautakjöt í ostrusósu
Súrsætir fiskibitar
Djúpsteiktar rækjur
Steiktar núðlur með grænmeti og eggjum
Mapo tófu
Súrsæt sósa
Hrísgrjón

Verð: 3.590 kr. á mann.

Gestir geta tekið með sér eigin drykkjarföng, vín eða bjór, en einnig verða drykkir til sölu gegn vægu verði.

Athugið að gengið er inn um inngang hægra megin við aðalinngang veitingahússins.

Fjöldi sæta er takmarkaður og er fólk því vinsamlegast beðið að panta tímanlega með því að senda tölvupóst á netfangið kim@kim.is. Pantanir berist í síðasta lagi miðvikudaginn 14. febrúar fyrir kl. 16.00.

Hlökkum til að hitta ykkur,

Kær kveðja,

Guðrún Margrét Þrastardóttir, formaður
Kínversk-íslenska menningarfélagið

https://kim.is
https://www.facebook.com/Kinverskislenskamenningarfelagid/
kim@kim.is

Viðhengi –Attachment
Áramótafagnaður KÍM og ÍKV 2018

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *