Kinverjar

Kínverskir Ferðamenn

Að taka á móti 90 þúsund kínverskum ferðamönnum 
Danielle Neben

Erindið flutt á ensku – Lecture in English.

Árið 2018 komu næstum 90.000 kínverskir ferðamenn til landsins. Samkvæmt framtíðarspám mun fjöldinn halda áfram að aukast með hugsanlegu beinu flugi frá Kína og auknum fjölda Kínverja með vegabréf. Í dag eru aðeins um 10% kínversku þjóðarinnar með vegabréf – um 100 milljón manns. Margir hafa hug á því að ferðast til einstakra áfangastaða eins og til Íslands.

Rannsóknir sýna að þegar Kínverjar ferðast erlendis eyða þér háum fjárhæðum til gjafakaupa, í dagsferðir og á veitingastöðum. Þetta er nýr hluti markaðarins innan ferðamannabransans.
Danielle

Danielle Neben, markaðsstjóri ePassi á Íslandi, mun fjalla um hvernig best sé að taka vel á móti kínverskum ferðamönnum á Íslandi. Umræðuefni hennar snýr að markaðssetningu, farsímagreiðslum og kínverskri menningu.

Danielle hefur mikla reynslu af því að starfa með Kínverjum. Hún starfaði hjá HSBC (the Hong Kong Shanghai Banking Corporation) í 20 ár og bjó sjálf í Taívan og Singapore, auk þess sem hún stundaði viðskipti í Hong Kong og á meginlandi Kína. Nú býr hún í Mosfellsbæ með eiginmanni og tveim börnum.

Auk þess að vera markaðsstjóri ePassi á Íslandi, situr hún einnig í stjórn HB Granda, Meniga og Monerium. Hún sat einnig áður í stjórn Landsbankans (frá 2013-2017).

Þessi viðburður er á vegum Kínversk-íslenska menningarfélagsins og Konfúsíusarstofnuninnar Norðurljósa, sem býður einnig upp á ókeypis veitingar. Hann verður haldinn miðvikudaginn 13. mars 2019 kl. 17:30 – í stofu VHV-008, sem er í kjallara Veraldar, húsi Vigdísar, að Brynjólfsgötu 1, Reykjavík.  Næg frí bílastæði eru við bygginguna.
VeroldÁður en fyrirlesturinn hefst verður boðið upp á veitingar og geta gestir spjallað saman og notið þeirra en síðan tekur fyrirlesturinn við sem áætlað er að taki um 45 mínútur.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Viðburðurinn (event) á Facebook

Lewis

2 thoughts on “Kínverskir Ferðamenn”

  1. Hi Svanur,

    This is a great video on Iceland and the celebrities are well known. The total views of 43 million were for the 9 episodes – Iceland was in episode 1. There are many factors that are contributing to the increase in Chinese tourists to Iceland. The number of Chinese tourists flying through Helsinki has doubled in the past two years to 530.000 in 2018. And we benefit from this increase as they want to travel to 2-3 countries when they are in the Nordics. And in December/summer months, we also have Chinese living in Europe travelling to Iceland for their holidays.

    Many tour companies in Iceland have been marketing to this new segment. Iceland Review has been profiling Iceland for many years, both written and with filming for tv shows in China. Platforms like Guide to Iceland and Arctic Adventures have marketing and websites targeted to the Chinese. And with the launch of both Alipay and WeChat Pay in Iceland, this has given exposure as well through their media and payment platforms.

    Since last September 2018, the number of Chinese tourists has been increasing by 15-30% versus prior year figures. And when Iceland has direct flights, this will also have a positive impact.

    I hope to see you at the event tomorrow!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *