Category Archives: Börn – Unglingar

Fögnum kínverska nýárinu

Allir velkomnir að fagna ári rottunnar

Framundan eru tveir viðburðir til að fagna hinu kínverska nýári.
Rottuár
Konfúsíusarstofnun býður í samstarfi við Kínverska sendiráðið gesti velkomna á opinn dag í Hörpu, á 2. hæð, sunnudaginn 2. febrúar kl. 13:30-16:00. Dagskráin er að venju fjölbreytt og skemmtileg. Allir velkomnir að fagna ári rottunnar. Continue reading Fögnum kínverska nýárinu

ættleidd frá kína

Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir er á öðru ári í Kvennaskólanum í Reykjavík.  Hún er ættleidd frá Kína og hefur búið á Íslandi frá því hún var 14 mánaða. Í kynningunni mun hún tala um það hvernig það hefur verið fyrir hana að búa á Íslandi, hafandi annað útlit og annan bakgrunn en flestir Íslendingar. Þá mun hún líka tala um ferðina sína aftur til Kína og upplifun þar en þangað fór  með móður sinni árið 2011 til að heimsækja gamlar slóðir. Continue reading ættleidd frá kína

Gaman í kína

Gaman í Kína
Guðrún Margrét Þrastardóttir

Guðrún Margrét Þrastardóttir hóf störf í Sendiráði Íslands í Beijing árið 1999, og bjó í borginni í 3 ár.

Ég  var einstæð móðir og flutti með Þröst son minn til Beijing en við höfðum aldrei komið til Kína áður og hafði ég alls ekki leitt hugann að því að búa þar. Þröstur fékk skólavist í góðum alþjóðlegum skóla, þar sem hann naut sín daglega en hann ferðaðist þangað með skólabíl.

Í heimsókn í skóla Þrastar, Western Academy of Beijing árið 2014 – Þröstur með aðalkennara sínum
Í heimsókn í skóla Þrastar, Western Academy of Beijing árið 2014 – Þröstur með aðalkennara sínum
Continue reading Gaman í kína

Eilífðar unnusta mín

Kína er eilífðar unnusta mín
Arnþór Helgason

Kínversk-íslenska menningarfélagið var stofnað haustið 1953. Árið áður hélt íslensk sendinefnd til Kína, en boð þar um hafði borist hingað til lands. Í nefndinni voru m.a. Jóhannes úr Kötlum og Þórbergur Þórðarson, fulltrúi Esperantista.

ThorbergurJohannes
Continue reading Eilífðar unnusta mín

ókeypis tónleikar þulu

Tónleikar þjóðlagasveitarinnar Þulu

Tónleikar þjóðlagasveitarinnar Þulu verða haldnir í Kínverska sendiráðinu að Bríetartúni 1, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 19. júlí kl. 19:00 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Allir velkomnir og ókeypis aðgangur en nauðsynlegt að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: kim@kim.is . Ekki þarf að framvísa boðsmiðanum.
Þula
Continue reading ókeypis tónleikar þulu